FEN
Dot matrix prent á klósettpappír í þrívíddarprentuðum flísaramma
18.5
x 27 cm
Vettvang losunar, hreinsunar og slökunar.
Upphafsstað flókins leiðarkerfis sem leiðir skít í gegnum hreinsunarstöðvar til þess loks að skila hreinu vatni út í sjó. Einskonar flísalögð alkemía. Forskrift hvers má finna hjá rótum grasa í botni fenja sem hreinsað hafa óhreinindi úr vatni í gegnum aldirnar. Að sitja á klósettinu er líka íhugul iðja sem gefur þér tíma í einrúmi til þess að ekki aðeins tæma þarma og blöðru heldur einnig hugann í leiðinni. Hver veit nema að í hugartóminu sjáir þú allt í einu teikningu í klósettpappírnum sem þú hefur lokið við að skeina þér með.
Fritz Hendrik IV (f. 1993) er íslenskur myndlistamaður sem að býr og starfar í Reykjavík. Í myndlist sinni fjallar hann m.a. um þá meðvituðu og ómeðvituðu sviðsetningu sem einkennir lífið, listir og menningu. Fritz fæst einnig við samband hefðar, skynjunar og þekkingar í verkum sínum. Hvað vitum við, hvernig vitum við, og hvað er það sem við erum að horfa á? Fritz hefur meðal annars haldið einkasýningar í Kling og Bang og Ásmundarssal auk þess að hafa tekið þátt í samsýningum á borð við Tilvist mansins: skyssa að íslenskri samtímalistasögu (III) í Listasafni Reykjavíkur og Abracadabra, Moscow biennale for young art í Rússlandi. Verk Fritz eru í eigu fjölda einkaaðila og safnara sem og Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur.
90.000 kr.
FREKARI UPPLÝSINGAR
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um verk eða listamann vinsamlega sendu okkur fyrirspurn með hnappinum hér að neðan.