15.06 –
6.07.2024
@ Listval Gallery

Jón B. K. Ransu

Parergon: Fjarveran sem skilgreinir málverkið

Í heimspeki á hugtakið „Ergon“ við um hinn framleidda hlut, eða það sem einkennir hann sem verk unnið af hendi manneskju. „Ergon“ listaverks er þar af leiðandi afrakstur listamannsins, eða sköpunarverk hans. Tónverk er afrakstur tónskálds, höggmynd er afrakstur myndhöggvara og málverk er afrakstur listmálara.

Hugtakið „parergon“ á hins vegar við um eitthvað sem fylgir verkinu án þess að vera hluturinn sjálfur.

Í bókinni „Sannleikurinn um málverkið“ veltir franski heimspekingurinn Jacques Derrida fyrir sér eðli málverks og horfir þá sérstaklega til „parergon“ þess. Derrida byrjar þessar vangaveltur sínar á því að vitna í franska listmálarann Paul Cézanne sem kvaðst hafa áhuga á merkingunni sem ekki er sýnileg í málverkinu, á sama tíma og hann sagðist fást við sannleikann í málverkinu. En í þessu viðhorfi Cézanne liggur hrópandi mótsögn. Hún er að hulin merking og sannleikur geta ekki verið eitt og hið sama nema maður horfi á merkinguna sem er ekki sýnileg í málverkinu sem sannleikann í málverkinu. Við getum því ekki greint málverk með því að horfa eingöngu á það sem er innan ramma þess og sleppt því sem er utan hans, eða öfugt, samkvæmt Derrida, því: „Takmörk þess sem er fyrir innan og utan, hljóta, á einhverjum skilum, að vera samtvinnuð“. Eða, til þess að taka þetta jafnvel skrefinu lengra, verður sannleikurinn sem er ósýnilegur í málverkinu fjarveran sem skilgreinir málverkið.

Verk á sýningu

Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
56
x 51 cm
220.000 kr.
JBKR001
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
58
x 53 cm
220.000 kr.
JBKR002
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
52
x 57 cm
220.000 kr.
JBKR003
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
50
x 60 cm
220.000 kr.
JBKR004
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
51
x 56 cm
220.000 kr.
JBKR005
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
58
x 52 cm
220.000 kr.
JBKR006
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
61
x 60 cm
220.000 kr.
JBKR007
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
50
x 60 cm
220.000 kr.
JBKR008
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
57
x 54 cm
JBKR009
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
52
x 53 cm
220.000 kr.
JBKR010
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
55
x 61 cm
220.000 kr.
JBKR011
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
57
x 51 cm
220.000 kr.
JBKR012
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
60
x 60 cm
220.000 kr.
JBKR013
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
55
x 54 cm
220.000 kr.
JBKR014
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
53
x 56 cm
JBKR015
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
56
x 52 cm
220.000 kr.
JBKR016
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
55
x 54 cm
220.000 kr.
JBKR017
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
63
x 53 cm
220.000 kr.
JBKR018
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
50
x 57 cm
220.000 kr.
JBKR019
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
54
x 57 cm
220.000 kr.
JBKR020
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
60
x 61 cm
220.000 kr.
JBKR021
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
53
x 57 cm
220.000 kr.
JBKR022
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
58
x 54 cm
220.000 kr.
JBKR023
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
53
x 61 cm
JBKR024
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
55
x 52 cm
220.000 kr.
JBKR025
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
51
x 55 cm
JBKR026
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
53
x 58 cm
220.000 kr.
JBKR027
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
51
x 55 cm
220.000 kr.
JBKR028
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
52
x 52 cm
220.000 kr.
JBKR029
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
56
x 50 cm
220.000 kr.
JBKR030
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
49
x 55 cm
220.000 kr.
JBKR031
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
61
x 60 cm
220.000 kr.
JBKR032
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
52
x 58 cm
220.000 kr.
JBKR033
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
52
x 57 cm
220.000 kr.
JBKR034
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
58
x 52 cm
220.000 kr.
JBKR035
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
56
x 58 cm
220.000 kr.
JBKR036
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
53
x 58 cm
220.000 kr.
JBKR037
Parergon
Akríl & Flügger húsamálning 7 Pro (Phase 1)
52
x 59 cm
220.000 kr.
JBKR038

Jón B. K. Ransu er myndlistarmaður menntaður í Hollandi á árunum 1990-1995. Þar af var hann í skiptinámi við NCAD (National College of Art and Design) í Dublín í eina önn. Þá tók Ransu þátt í ISCP (International Studio and Curatorial Program) í New York árið 2006 og hlaut þá styrk úr sjóði The Krasner Pollock Foundation.

Málverk Ransu byggja öllu jafnan á endurskoðun listaverka eða liststefna með áherslu á það hvernig við skynjum og vinnum úr upplýsingum lita og forma. Í fimmta bindi íslenskrar listasögu sem gefin var út árið 2011 segir: Ransu hefur unnið margvíslegar tilraunir sem tengjast meðal annars eignarnámsmálverki og skynjun áhorfandans. […] En þó sé um að ræða eignarnám er listamaðurinn aldrei ragur við að endurvinna viðkomandi tilvísanir til eigin listsköpunar með því að breyta efni, formi eða samhengi sem hefur í auknum mæli tekið á sig svið ný-módernismans, sér í lagi op-listarinnar, þar sem hann setur saman form og liti sem framkalla skynjunarröskun hjá áhorfendum“ (Gunnar Kvaran, Íslensk listasaga: Frá síðari hluta 19.aldar til upphafs 21. aldar. Nýtt Málverk, gjörningar og innsetningar, Forlagið og Listasafn Íslands, 2011, bls. 85).

Ransu  er einnig fræðibókahöfundur og hefur látið að sér kveða í skrifum um samtímalist í bókum og tímaritum. Hann starfaði sem myndlistargagnrýnandi hjá Morgunblaðinu frá 2002 – 2010. Hann er höfundur Þriggja bóka um myndlist; Listgildi samtímans: Handbók um samtímalist á Íslandi árið 2012 og Málverkið sem slapp út úr rammanum árið 2014 og Hreinn hryllingur: Form og formleysur í samtímalist árið 2019. Þá var hann meðhöfundur að bókunum Valtýr Pétursson sem Listasafn Íslands gaf út árið 2016 og Gerður: Meistari málms og glers sem Listasafn Kópavogs gaf út árið 2010.

Síðan árið 2005 hefur Ransu tekið að sér einstaka verkefni sem sýningarstjóri og hefur meðal annars skipulagt sýningar fyrir Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Nýlistasafnið. Hann var einn af sýningarstjórum tvíæringsins Momentum 9: Alienation í Moss í Noregi árið 2017. Momentum tvíæringurinn er einhver stærsta sýning á samtímamyndist sem fyrirfinnst á Norðurlöndunum. 

Loks er Ransu menntaður í kennslufræðum og var stundakennari við í Listaháskóla Íslands frá árunum 2002 – 2016, þar sem hann kenndi bæði verklega og fræðilega áfanga á BA stigi og MA stigi. Hann er nú deildarstjóri Listmálarabrautar í Myndlistaskólanum í Reykjavík.

Shopping Cart