2.12 –
6.01.2024
@ Listval Gallery

Lilý Erla Adamsdóttir

Margfeldið á milli

Í gegnum skynfæri okkar brotnar heimurinn upp í víddir. Hlutirnir hafa kunnuglegt form. Upp og niður. Norður og suður. Fortíð og framtíð. Flötur og þrívídd. Upphaf og endir. En eru þessar víddir í náttúrunni sjálfri? 

Í náttúrunni er margfeldi handan við vitund mannsins. Við skynjum þetta margfeldi í hliðstæðum. Ofan frá séð kvíslast jökulá eins og regntaumar á rúðum bílsins. Í hversdagsleikanum kristallast form í stóru sem smáu. Í endurtekningum og útfellingum. Í landslagi árfarvegs og dýjamosa. 

Í verkum Lilýjar Erlu lætur hún sér ekki nægja að mynda hliðstæður. Hún vill fá okkur til þess að skynja á milli vídda og brýtur niður mörkin á milli skynfæra. Hvernig mjúk áferð túlkar hrjóstruga jörð,hvernig litir leysast upp í smáum þráðum og tengja saman ljós og hljóð. 

Uppistaðan í verkum hennar er þráðurinn. Á milli þráðanna er margfeldi sem getur framkallað sérstakt ljós. Þá skiptir aðkoman máli. Hvar áhorfandinn stendur. Hvort tekin sé ljósmynd. Dýptirnar eru iðandi. Það liggur í eðli þráðanna sem Lilý hefur valið. 

Það er ótrúlegt hvað þessir litlu þræðir skila miklu ljósi inn í verkið“, segir Lilý Erla en hún velur fíngerða þræði í mismunandi litum til þess að framkalla áhrifin. Striginn er strengdur lóðrétt upp og hún mundar Tuft-byssu sem knúin er af kraftmikilli loftpressu. Fíbrar ýrast þegar þræðirnir eru skornir. Ryk þyrlast upp og hávaði dynur í vinnustofunni. Átök og læti. 

Þegar kyrrðin leggst yfir halda verkin áfram að iða. Hvers vegna? Prófið að nema staðar og færa ykkur til hliðar og upp við verkið. Og takið eftir fínlegum þræði sem sjónin nær ekki að fanga fyrr en komið er nær. Þá eruð þið í þann mund að dragast inn í margfeldið á milli.

Verk á sýningu

Draumför dýjamosa
Wool, mohair, silk, linen, cotton polyester canvas and glue
110
x 110 cm
LEA034
Dýjamosi dagrenningar
Wool, mohair, silk, linen, cotton polyester canvas and glue
110
x 110 cm
LEA035
Wool, mohair, silk, linen, cotton polyester canvas and glue
135
x 170 cm
LEA038
mohair, ull, polyester
15
x 15 cm
20.000 kr.
LEA005
Wool, mohair, silk, linen, cotton polyester canvas and glue
208
x 135 cm
LEA037
Wool, mohair, silk, linen, cotton polyester canvas and glue
55
x 44 cm
LEA032
Síbreytilegt jafnvægi
Wool, mohair, silk, linen, cotton polyester canvas and glue
135
x 140 cm
780.000 kr.
LEA036
Wool, mohair, silk, linen, cotton polyester canvas and glue
55
x 53 cm
LEA031
Skör við skör
Wool, mohair, silk, linen, cotton polyester canvas and glue
62
x 48 cm
LEA030
Wool, mohair, silk, linen, cotton polyester canvas and glue
103
x 66 cm
370.000 kr.
LEA033

Lilý Erla Adamsdóttir vinnur á mörkum myndlistar, hönnunar og listhandverks. Í verkum sínum skoðar hún handgerða endurtekningu, möguleika hennar og takmarkanir. Hvernig hið einstaka kallast á við fjöldann um leið og fjöldinn skapar einstakan samhljóm. Vinnuferli Lilýjar einkennist af stöðugu samtali við efnið, þar sem eitt leiðir af öðru. Undanfarið hefur hún nýtt sér eiginleika tufttækninnar til skoðunar á þræðinum og sjónrænna áhrifa hans, þegar kemur að samspili lita og efniseiginleika. Lilý talar ýmist um verkin sín sem loðin málverk eða dansandi útsaum. Lilý Erla Adamsdóttir (f. 1985) lauk BA gráðu í myndlist frá LHÍ 2011 og MA gráðu í listrænum textíl frá Textilhögskolan í Borås í Svíþjóð 2017.

Mynd / Photo: Saga Sig
Shopping Cart