14.10 –
6.12.2022
@ Norr11

Kristín Morthens

Að snerta uppsprettu

Á sýningu Kristínar MorthensAð snerta uppsprettu, er áhorfandinn tekinn inn í óræðan heim þar sem samspil og samruni mjúkra forma, lita og litbrigða ráða ríkjum. Verkin fagna nýju lífi, þoku, snertingu, jörð og líkama, en Kristín vann verkin útfrá minni tilfinninga fyrir og eftir fæðingu. Þarna birtast fyrirbæri, einhverskonar líkamlegar verur, með sín eigin lögmál og fyrirheit. Þau teygja sig og beygja, grípa, fljóta um og eigast við. Tveir pólar mætast og sameinast í eina rás á meðan tíminn stendur í stað. Við sjáum augnablik umbreytinga frá fortíð til framtíðar. Það sem einu sinni var er nú annað, það sem er í dag var ekki hér áður.

Kristín Morthens (f. 1992) útskrifaðist árið 2018 með BFA í málaralist frá OCAD háskóla í Torontó, Kanada. Í verkum hennar eru frásagnir af nánd, aðskilnaði og mörkum túlkaðar út frá líkamlegum formum innan óræðra rýma. Verk Kristínar hafa verið sýnd á sýningum í söfnum og galleríum á Íslandi, í Evrópu og í Bandaríkjunum og Kanada. Kristín býr og starfar í Reykjavík.

Shopping Cart