Kyrrt æði
, 2024
gler og filma
35
x 35 cm
380.000 kr.
JHL033

Jóna Hlíf (f.1978) útskrifaðist frá fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri 2005, lauk MFA-gráðu frá Glasgow School of Art í Skotlandi 2007 og MA-gráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands 2012. Jóna Hlíf hefur haldið einkasýningar á viðurkenndum sýningarstöðum, m.a. í Listasafni Reykjavíkur og í Listasafninu á Akureyri. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og eru verk hennar í eigu opinberra safna. Textaverk, tilraunir með efni og innsetningar eru kjarninn í myndrænni tjáningu verka Jónu Hlífar. Texti sem áferð: sem leið til að birta hugsanir, við að setja fram og skapa samfélag, eða sem grundvöllur hugmynda. Í verkunum hefur Jóna Hlíf m.a. fengist við fyrirbærin kjarna, tíma og ímynd sögunnar.

 

Verkin Gömul von, Kyrrt æði, Lúmsk ást, Reynd trú og Snúið þel eru ný verk þar sem unnið er með merkingu, ljós, óræðni, skynjun og skilning. Þau kanna andstæður, liti og form.

Óendanleikinn í möguleikum tungumálsins er stöðugur hugmyndabrunnur. Útgangspunkturinn liggur í ímynd pörunar og óræðrar merkingar í einföldustu tegund lýsinga. Textaverkin byggja á þessum grunni með því að skapa paranir úr fimm- og þriggja stafa orðum – eitt lýsingarorð og eitt nafnorð.

Hver samsetning vísar að einhverju kunnuglegu, en er þó ekki nákvæm tilvísun. Orðasambönd á borð við Gömul von og Óljós þrá sem Jóna hefur áður notað í verkum sínum mynda upphafspunkt sem leiðir áfram í systursamsetningar og svipuð orðatengsl.

Í verkunum birtast merking og skilningur sem ákveðin tegund galdurs. Á bak við flest orð búa myndir, en því óljósari sem myndin er, þeim mun myndrænni verður upplifunin. Myndlistin á sér þannig ekki endilega stað í orðunum sjálfum, heldur í spennunni sem skynjun þeirra skapar.

FREKARI UPPLÝSINGAR

Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um verk eða listamann vinsamlega sendu okkur fyrirspurn með hnappinum hér að neðan. 

Email*
Nafn*
Skilaboð*
Skrá á póstlista?

ÍSLENSK AUÐMÝKT
Textaverk
37
x 48 cm
200.000 kr.
JHL012
Fyrstu sólardagar eftir flóðið
Textaverk
52
x 62 cm
260.000 kr.
JHL010
Íslensk Forréttindi/Icelandic Privilege
Postcard
15
x 15 cm
650 kr.
JHL023
Laufblöð meitluð í stein
Textaverk
52
x 62 cm
260.000 kr.
JHL008
Fífulogar. Gróðurhús/Cottongrass Flames. Greenhouse
Postcard
15
x 13.5 cm
650 kr.
JHL027
gler og filma
35
x 35 cm
380.000 kr.
JHL030
Shopping Cart