Hulda Vilhjálmsdóttir (f. 1971) útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með BA-gráðu í málun árið 2000. Hún lauk diplómanámi í leirmótun og keramik við Myndlistaskólann í Reykjavík árin 2007–2008. Hulda er þekkt fyrir persónulegt myndmál og hefur þróað með sér einstaka næmni fyrir mannlegum tilfinningum í verkum sínum. Árið 2007 var Hulda tilnefnd til Carnegie ART verðlaunanna og árið 2018 til Íslensku myndlistarverðlaunanna fyrir einkasýninguna Valbrá í Kling & Bang. Árið 2019 hlaut hún myndlistarverðlaunin Tilberann. Hulda hefur haldið fjölda einka- og samsýninga hérlendis og erlendis, og verk hennar eru í eigu listasafna og einkaaðila. Hún býr og starfar í Reykjavík.
FREKARI UPPLÝSINGAR
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um verk eða listamann vinsamlega sendu okkur fyrirspurn með hnappinum hér að neðan.