Sigtryggur Bjarni Baldvinsson

Sigtryggur Bjarni Baldvinsson

Héðinsfjarðará botn
vatnslitur á pappír
77
x 57 cm
380.000 kr.
312
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson er fæddur á Akureyri árið 1966. Hann stundaði nám í Myndlistaskólanum á Akureyri, Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk framhaldsnámi frá the École des Arts Decoratifs í Strassborg í Frakklandi. Sigtryggur hefur í málverkum, ljósmyndum og vatnslita-myndum gert afmörkuðum náttúrufyrirbrigðum skil. Vatnsfletir hafa verið leiðandi stef í verkum hans, straumvatn og haffletir sem endurspegla hinar höfuðskepnurnar, ljós, loft og jörð og einstaka krafta náttúrunnar svo sem vind og þyngdarafl. Sigtryggur hefur einnig reynt að skýra og draga fram uppbyggingu eða niðurröðun hlutanna í heiminum meðal annars með myndum af blómabrekkum og laufskrúði trjáa. Spurningar, um erindi nútímamannsins út í ósnortna náttúru og ábyrgð mannsins gagnvart henni, marka nú vinnu listamannsins með vaxandi þunga. Verk Sigtryggs hafa verið sýnd á einkasýningum og samsýningum á helstu söfnum hérlendis. Einkasýningarnar eru orðnar vel á fjórða tug. Verk hans eru í eigu Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Háskóla Íslands, Listasafnsins á Akureyri, Listasafns Reykjanesbæjar, Hæstaréttar Íslands, Landspítalans og Gerðarsafns og ýmissa fyrirtækja og einkaaðila. Sigtryggur hefur kennt við Listaháskóla Íslands, Myndlistaskólann í Reykjavík, Myndlistaskóla Kópavogs og Myndlistaskólann á Akureyri. Sigtryggur sat í safnráði Listasafns Íslands um fjögurra ára skeið.
Sigtryggur Berg
Shopping Cart

Hafir þú spurningar um myndlistarráðgjöf, einstaka verk eða í leit af verki eftir ákveðinn listamann ekki hika við að senda okkur tölvupóst á netfangið listval@listval.is eða fylla út formið hér að neðan.

Nafn*
Netfang*
Skilaboð
Vantar þig hugmynd að nýjum verkum? Aðstoð við upphengi? Eða almenna ráðgjöf?

LISTVAL @ HARPA

LISTVAL @ GRANDI