Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Jóna Hlíf (f.1978) útskrifaðist með MA gráðu frá Glasgow School of Art í Skotlandi 207 og MA í listkennslu frá Listaháskóla Íslands 2012. Textaverk, tilraunir með efni og innsetningar eru kjarninn í myndrænni tjáningu verka Jónu Hlífar. Texti sem áferð: sem leið til að birta hugsanir, við að setja fram og skapa samfélag, eða sem grundvöllur hugmynda. Í verkunum hefur Jóna Hlíf m.a. fengist við fyrirbærin kjarna, tíma og ímynd sögunnar. Verk Jónu Hlífar hafa verið sýnd víða í söfnum og galleríum bæði innanlands og erlendis. Þar ber helst að nefna einkasýningar í Listasafni Reykjavíkur, Listasafninu á Akureyri og Berg Contemporary. Jóna Hlíf hefur tekið þátt í fjölda samsýninga, meðal annars í Listasafni Íslands, Listasafni Árnesinga, Kuckei+Kuckei og Nýlistasafninu. Á ferli sínum hefur Jóna Hlíf hlotið fjölda styrkja og eru verk hennar í eigu opinberra listasafna. Árið 2022 kom út bókin Brim Hvít Sýn sem fjallar um myndlist Jónu Hlífar, innsetningar og textaverk, sem hún hefur skapað undanfarna tvo áratugi. Auður Aðalsteinsdóttir, doktor í bókmenntafræði, er ritstjóri bókarinnar og Júlía Runólfsdóttir, sá um hönnun og útlit. Bókin hlaut silfurverðlaun FÍT fyrir bókakápu og bókahönnun.

Skráðu netfangið þitt hér og við sendum þér fleiri fáanleg verk.
Download CV
+ Skoða heimasíðu