Í verkum sínum vinnur Linda endurtekið með ljósmyndir af Keili og hans nánasta umhverfi. Myndirnar fanga fjallið við ýmis tækifæri; þegar litir í umhverfi eru sterkir eða óvenjulegir, form í hafi og himni eru ýkt eða veðurfar óhversdagslegt. Allar myndirnar tekur Linda af svölunum heima hjá sér á Seltjarnarnesi. Ljósmyndunum er síðan skeytt saman við aðrar, óháð tíma- og dagsetningum, til að skapa að lokum nýtt, endurunnið landslag sem aldrei var og sem sýnir Keili í uppskálduðu og framandi ljósi.
FREKARI UPPLÝSINGAR
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um verk eða listamann vinsamlega sendu okkur fyrirspurn með hnappinum hér að neðan.