Um Listval

Listval er sýningar- og sölugallerí í Reykjavík sem leggur áherslu á íslenska samtímamyndlist og persónulega myndlistarráðgjöf.

Frá stofnun árið 2019 hefur Listval unnið með fjölbreyttum hópi rótgróinna og upprennandi listamanna og staðið fyrir fjölda sýninga. Með sýningarhaldi, miðlun og ráðgjöf viljum við skapa tengsl milli listamanna, listaverka og þeirra sem njóta þeirra.

Samhliða sýningarstarfseminni veitum við einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf við val og kaup á listaverkum. Við leggjum áherslu á persónulegt samstarf og að finna verk sem eiga erindi við fólkið og rýmin sem þau verða hluti af.

Kynntu þér myndlistarráðgjöf Listvals →

Georg Óskar, sýning í Listval

Við erum

Elísabet Alma Svendsen og Helga Björg Kjerúlf hafa báðar starfað þvert á svið myndlistar og hönnunar og hafa góða innsýn og sterk tengsl inn í myndlistarsenuna. Þær hafa komið að fjölda verkefna tengdum myndlist, svo sem rekstri gallerís, útgáfu, Feneyjatvíæringnum og kynningu á íslenskri myndlist á alþjóðavísu.

Elísabet Alma Svendsen
Helga Björg Kjerúlf
Sunna Axels

Gallery Manager

sunna@listval.is

Heimsókn

Við tökum vel á móti þér í galleríinu, hvort sem þú vilt skoða sýningu, kynna þér verk eftir ákveðinn listamann eða fá aðstoð við val á listaverki.

Staður

Hólmaslóð 6
101 Reykjavík

Opið

Fös 13–17
Lau 13–16
Aðra daga eftir samkomulagi

Samband

+354 669 6760
listval@listval.is

Sjá á korti →Bóka skoðun →

Shopping Cart