13.06 –
4.07.2026
@ Listval

Georg Óskar

Málverk fyrir fólk sem sefur illa

Einkasýning Georgs Óskars, Málverk fyrir fólk sem sefur illa, opnar laugardaginn 13. júní milli kl 15-17 í Listval galleríi, Hólmaslóð 6.

Sýningin fjallar um hið sálræna ástand milli svefns og vöku, þegar tíminn verður óstöðugur og mörk innri og ytri veruleika mást út. Röð ómeðvitaðra og jafnvel stjórnlausra hugsana minna á óræðar og marglaga pensilstrokurnar.

Andlitin, fígúrurnar og blómin sem sjá má í málverkunum eru skrásetning á innra ástandi fremur en nákvæm lýsing á ytri veruleika. Í verkunum birtist þetta ekki sem bein frásögn heldur tekur á sig efnislega mynd og verður hluti af eðli málverksins og mörgum lögum málningarinnar. Sem mótvægi við hið hráa og grófa sem birtist á óreiðukenndum myndfletinum er myndefnið oft á tíðum kómískt og draumkennt og fullt af leikgleði sem er einkennandi í verkum Georgs Óskars.

Sýningin stendur frá 13 júní – 4 júlí.

Verk á sýningu

Bouquet of regrets
Olía á striga
120
x 150 cm

Price on request

GO64
Íslenskt inniveður
Olía á striga
150
x 170 cm

Price on request

GO65
Karíus og Bakkus
Olía á striga
200
x 210 cm

Price on request

GO63
Notes from the lonely particle
Olía á striga
150
x 175 cm

Price on request

GO62
Sunflowers after delirium
Olía á striga
150
x 120 cm

Price on request

GO59
The Sky Forgot to Be Blue
oil on canvas
92
x 60 cm

Price on request

GO09

Georg Óskar (f. 1985) útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri 2009 og lauk mastersnámi í myndlist við Kunst- og designhøgskolen í Bergen í Noregi 2016. Verk Georgs Óskars bera mörg hver með sér kómískan blæ þar sem hversdagsleg fyrirbæri og hin líðandi stund er fest á strigann. Í verkum sínum sleppir hann ímyndunaraflinu lausu og skrásetur persónulega reynslu með myndrænum hætti. Georg Óskar hefur haldið sýningar víða erlendis t.d. á Spáni, í Þýskalandi, Kína, Sviss, Noregi og á Íslandi. Georg Óskar býr og starfar í Osló, Noregi.

Shopping Cart