Einkasýning Georgs Óskars, Málverk fyrir fólk sem sefur illa, opnar laugardaginn 13. júní milli kl 15-17 í Listval galleríi, Hólmaslóð 6.
Sýningin fjallar um hið sálræna ástand milli svefns og vöku, þegar tíminn verður óstöðugur og mörk innri og ytri veruleika mást út. Röð ómeðvitaðra og jafnvel stjórnlausra hugsana minna á óræðar og marglaga pensilstrokurnar.
Andlitin, fígúrurnar og blómin sem sjá má í málverkunum eru skrásetning á innra ástandi fremur en nákvæm lýsing á ytri veruleika. Í verkunum birtist þetta ekki sem bein frásögn heldur tekur á sig efnislega mynd og verður hluti af eðli málverksins og mörgum lögum málningarinnar. Sem mótvægi við hið hráa og grófa sem birtist á óreiðukenndum myndfletinum er myndefnið oft á tíðum kómískt og draumkennt og fullt af leikgleði sem er einkennandi í verkum Georgs Óskars.
Sýningin stendur frá 13 júní – 4 júlí.


