Verkin Gömul von, Kyrrt æði, Lúmsk ást, Reynd trú og Snúið þel eru ný verk þar sem unnið er með merkingu, ljós, óræðni, skynjun og skilning. Þau kanna andstæður, liti og form.
Óendanleikinn í möguleikum tungumálsins er stöðugur hugmyndabrunnur. Útgangspunkturinn liggur í ímynd pörunar og óræðrar merkingar í einföldustu tegund lýsinga. Textaverkin byggja á þessum grunni með því að skapa paranir úr fimm- og þriggja stafa orðum – eitt lýsingarorð og eitt nafnorð.
Hver samsetning vísar að einhverju kunnuglegu, en er þó ekki nákvæm tilvísun. Orðasambönd á borð við Gömul von og Óljós þrá sem Jóna hefur áður notað í verkum sínum mynda upphafspunkt sem leiðir áfram í systursamsetningar og svipuð orðatengsl.
Í verkunum birtast merking og skilningur sem ákveðin tegund galdurs. Á bak við flest orð búa myndir, en því óljósari sem myndin er, þeim mun myndrænni verður upplifunin. Myndlistin á sér þannig ekki endilega stað í orðunum sjálfum, heldur í spennunni sem skynjun þeirra skapar.
FREKARI UPPLÝSINGAR
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um verk eða listamann vinsamlega sendu okkur fyrirspurn með hnappinum hér að neðan.





