Skilmálar þessir gilda um kaup á verkum og eða vöru á vefnum listval.is


Almennt
Listval áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á ákveðin verk eða vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis eða á staðnum.
 
Afhending vöru
Þegar þú verslar í vefverslun Listval  getur þú valið um að sækja vöruna í sýningarrými Listvals á fyrstu hæð í Hörpu eða fá hana senda heim með Póstinum. Pantanir eru sendar innan tveggja virkra daga. Afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins gilda um afhendingu á verkum/vörum. Listval ber þannig enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á verki/vöru í flutningi.
 
Frí heimsending
Ef verslað er fyrir meira en 50.000 kr. er hægt að fá pöntunina senda heim ókeypis. 
 
Innpökkun
Hægt er að fá vörur innpakkaðar í gjafapappír sé þess óskað.   
 
Skil á myndlist
Kaupandi hefur 14 daga til að skila verki að því tilskildu að verkið sé í sama ástandi og það var afhent. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Vinsamlegast hafið samband við Listval með frekari spurningar.
 
Skil á vöru
Samkvæmt reglum um rafræna verslun er 14 daga skilafrestur að því tilskildu að varan sé í upprunalegum umbúðum og í sama ástandi og hún var afhent. Endurgreiðsla fer í gegnum greiðslukortafyrirtækið á sama kort og var skuldfært í upphafi. Sendið tölvupóst á listval@listval.is ef þið viljið skila eða skipta og við munum ganga frá endurgreiðslu / annarri vöru ef óskað er. 
 
Greiðsur
Mögulegt er að greiða fyrir vörukaup með kortum (Mastercard og Visa) og Kortaláni Borgunar. Greiðslan fer fram í gegnum örugga afgreiðslu Borgunar ehf. Kortanúmerin eru dulkóðuð. Útilokað er fyrir utanaðkomandi aðila að nálgast upplýsingar um kortanúmer. Sá sem verslar í þessu umhverfi getur verið viss um að upplýsingarnar sem hann skráir eru öruggar fyrir utanaðkomandi aðilum. Ef greiðsla berst ekki, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni.
Einnig er hægt að greiða vöru með því að millifæra inn á Listval ehf, kt. 6801210280 og rn: 0537-26-006415. 
 
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Allir sem versla hjá okkur verða skráðir sjálfkrafa á póstlistann hjá okkur.
 
Lögsaga og varnarþing
Komi til málshöfðunar milli kaupanda og seljanda um túlkun á skilmála þessa, gildi þeirra og efndir skal reka það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Upplýsingar um seljanda
Nafn: Listval ehf
Heimilisfang: 1.hæð Hörpu, Austurbakki 2, 101 Reykjavík
Sími: 694 6048 / 6933742
Netfang: listval@listval.is Kennitala: 680121-0280
Vsk. númer: 140152
 
Félagið er skráð hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra.
 
Vafrakökur
Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja góða upplifun fyrir notendur. Vafrakaka (e. Cookie) er lítil textaskrá sem vafrinn vistar í tölvuna þína eða snjalltæki þegar þú heimsækir þennan vef. Upplýsingarnar í kökunni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu og þær upplýsingar til að bæta vefinn, þjónustuna o.fl.

Með því að samþykkja notkun á vafrakökum heimilar þú vefnum m.a.
• að bera kennsl á notendur sem hafa komið áður og sníða þá leit, þjónustu, ofl. í samræmi við fyrri notkun og stillingar
• að safna saman tölfræðilegum upplýsingum sem notaðar eru til gefa innsýn til að bæta vefsvæðið og þjónustuna
• að birta notendum auglýsingar
• að safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um vefinn

Við notum Google Analytics til að til vefmælinga. Upplýsingar sem Google Analytics safnar eru ekki persónugreinanlegar upplýsingar. Við notum Facebook og Google Ads til að mögulega birta auglýsingar til notenda sem heimsótt hafa vefsvæðið en það er gert án þess að notast við persónugreinanlegar upplýsingar.
Ef þú vilt ekki heimila slíkt getur þú slökkt á þeim í stillingum í vafranum. Góðar upplýsingar um stillingar á vafrakökum er að finna hér:allaboutcookies.org
Meðferð persónuupplýsinga

Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, kennitölu, netfangi og símanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér, skráningu á póstlista eða vegna annarra samskipta við þig. Einnig fjármálatengdar upplýsingar og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. Allar persónuupplýsingar sem þú lætur okkur í té eða kunna að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með í samræmi við lög 90/2018 um persónvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð ESB nr. 2016/679.
Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.
SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.

Óskir þú frekari upplýsingar eða viljir láta eyða gögnum um þig hafðu þá samband við listval@listval.is

Shopping Cart