8.03 –
30.03.2024
@ Listval Gallery

Comfortable Universe

Hjartanlega þægilegt

Nafn sýningarinnar Hjartanlega þægilegt vísar í nándina. Eftir 2 ár í stríði er ennþá hægt að finna öryggi í hæglátri nærveru. Hljóðlát andmæli. Einlæg, þrautseyg mótspyrna. Samvera af öllu hjarta. Verkin eru handsaumuð teppi úr ull og akríl. Teppin tengjast öll saman sem ein sería til að skapa ímyndaðan heim sem endurspeglar daglegan raunveruleika listafólksins klæddan í hugljúfan búning nándar og samveru. Þegar allt kemur til alls þá eru það litlu hlutirnir sem skipta sköpum og þegar athygli heimsins er ekki lengur á því sem gerist í Úkraínu er nauðsynlegt að halda fast í grunninn og byrgja stoðirnar. Á sýningunni er fólk hvatt til þess að koma saman, snertast, knúsast og finna hlýjuna í tímanum sem teppin boða.

Verk á sýningu

Ull og akríl
77
x 113 cm
350.000 kr.
CU018
Hjartanlega þægilegt
Ull og akríl
113
x 116 cm
CU016
Ull og akríl
104
x 98 cm
CU015
Næturværð
Ull og akríl
84
x 104 cm
CU013
Ull og akríl
87
x 87 cm
310.000 kr.
CU020
Ull og akríl
77
x 115 cm
350.000 kr.
CU012
Ull og akríl
64
x 108 cm
230.000 kr.
CU010
Stuðningur
Ull og akríl
60
x 117 cm
270.000 kr.
CU008

Hjónin Óskar Hallgrímsson og Mariika Lobyntseva skipa tvíeykið Comfortable Universe. Verkin eru unnin í Úkraínu eftir innrás Rússa í landið, nánar tiltekið á vinnustofu þeirra hjóna í miðborg Kyiv.

Óskar Hallgrímsson útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2015 með B.A. gráðu í Grafískri hönnun og hefur einnig starfað sem ljósmyndari síðastliðin 18 ár, á Íslandi, víða um heim og síðastliðna mánuði í stríðinu í Úkraínu. Hann hefur gefið út 3 ljósmyndabækur og tekið þátt í fjölda sýninga hér heima og erlendis, meðal annars haldið einkasýningu í Gallery Port sumarið 2019 sem bar nafnið “Hello, love you forever”. Óskar hefur einnig starfað sem blaðamaður og ljósmyndari í stríðinu frá upphafi innrásar Rússa í Úkraínu í febrúar 2022. 

Mariika Lobyntseva, sem er úkraínsk, útskrifaðist úr Odessa Grekov Art College af listmálaradeild árið 2014. Hún kláraði gráðu í listmeðferð frá PLINE miðstöðinni í sálfræði frá Kharkiv í Úkraínu. Hún hélt svo áfram í nám til myndlistardeild Kyiv Academy of Media Arts þar sem hún útskrifaðist árið 2018. Hún býr og starfar í Kyiv og á Íslandi til skiptis. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið einkasýningar víðsvegar um Úkraínu ásamt því að vinna sem húðflúrari í lausaverkum.

Shopping Cart