fbpx
20.08 –
10.10.2022
@ Norr11

Geirþrúður Einarsdóttir

Staður

Á sýningu Geirþrúðar Einarsdóttur Staður gefur að líta þrívíð málverk, eins konar lágmyndir, sem sækja innblástur sinn til landslags og loftmynda af náttúrunni á óræðum stöðum. Í verkum sínum leitast Geirþrúður við að fanga víðáttu á litlum fleti í landslagi sem þrengir stöðugt að manni. Hún veltir fyrir sér tilfinningunni og andstæðunni sem birtist í því að þjóta áfram en standa á sama tíma grafkyrr. Verk hennar vísa í handverkið, þau eru unnin á nákvæman hátt; skorin út í karton og klædd með máluðum hörstriga. Stundum myndast toppar og skurðir á jaðri strigans og brjóta þannig upp ferningslaga formið.

Geirþrúður Einarsdóttir (f. 1989) útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands vorið 2016. Haustið eftir útskrift var hún starfsnemi í listamannarekna rýminu A-Dash í Aþenu. Í dag býr hún og starfar í Reykjavík. Hún hefur sýnt á ýmsum samsýningum, bæði hér heima og erlendis. Staður er hennar fyrsta einkasýning.

Geirþrúður Einarsdóttir. Mynd / Photo: Anna Kristín Óskarsdóttir
Shopping Cart