Tvær áttir
, 2022
blönduð tækni
119
x 90 cm
GEE018
Verkið tilheyrir sýningu Geirþrúðar Einarsdóttur, Staður, í Norr11 dagana 20.08-10.10.2022. Á sýningu Geirþrúðar Einarsdóttur Staður gefur að líta þrívíð málverk, eins konar lágmyndir, sem sækja innblástur sinn til landslags og loftmynda af náttúrunni á óræðum stöðum. Í verkum sínum leitast Geirþrúður við að fanga víðáttu á litlum fleti í landslagi sem þrengir stöðugt að manni. Hún veltir fyrir sér tilfinningunni og andstæðunni sem birtist í því að þjóta áfram en standa á sama tíma grafkyrr. Verk hennar vísa í handverkið, þau eru unnin á nákvæman hátt; skorin út í karton og klædd með máluðum hörstriga. Stundum myndast toppar og skurðir á jaðri strigans og brjóta þannig upp ferningslaga formið. Geirþrúður Einarsdóttir (f. 1989) útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands vorið 2016. Haustið eftir útskrift var hún starfsnemi í listamannarekna rýminu A-Dash í Aþenu. Í dag býr hún og starfar í Reykjavík. Hún hefur sýnt á ýmsum samsýningum, bæði hér heima og erlendis. Staður er hennar fyrsta einkasýning.

Fáðu send skilaboð þegar ný verk eftir viðkomandi listamann koma á skrá. 

Email*
Nafn*
Skilaboð*
Skrá á póstlista?

Bómull og hör
80
x 57.5 cm
250.000 kr.
GEE038
Bómull og hör
70
x 55 cm
280.000 kr.
GEE047
Blönduð tækni á stirga
25,5
x 33 cm
130.000 kr.
GEE014
Bómull og hör
50
x 40 cm
160.000 kr.
GEE048
Bómull og hör
50
x 40 cm
160.000 kr.
GEE031
Bómull og hör
50
x 40 cm
160.000 kr.
GEE037
Shopping Cart