Tún

, 2022

Bómull og hör

30

x 22,5 cm

Verkið tilheyrir sýningu Geirþrúðar Einarsdóttur, Staður, í Norr11 dagana 20.08-10.10.2022. Á sýningu Geirþrúðar Einarsdóttur Staður gefur að líta þrívíð málverk, eins konar lágmyndir, sem sækja innblástur sinn til landslags og loftmynda af náttúrunni á óræðum stöðum. Í verkum sínum leitast Geirþrúður við að fanga víðáttu á litlum fleti í landslagi sem þrengir stöðugt að manni. Hún veltir fyrir sér tilfinningunni og andstæðunni sem birtist í því að þjóta áfram en standa á sama tíma grafkyrr. Verk hennar vísa í handverkið, þau eru unnin á nákvæman hátt; skorin út í karton og klædd með máluðum hörstriga. Stundum myndast toppar og skurðir á jaðri strigans og brjóta þannig upp ferningslaga formið. Geirþrúður Einarsdóttir (f. 1989) útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands vorið 2016. Haustið eftir útskrift var hún starfsnemi í listamannarekna rýminu A-Dash í Aþenu. Í dag býr hún og starfar í Reykjavík. Hún hefur sýnt á ýmsum samsýningum, bæði hér heima og erlendis. Staður er hennar fyrsta einkasýning.
Geirþrúður Einarsdóttir (f. 1989) útskrifaðist af myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2016. Haustið eftir útskrift var hún starfsnemi hjá listamannarekna rýminu A-Dash í Aþenu. Geirþrúður er einnig menntaður klæðskeri og er textíll og saumur því oft áberandi í verkum hennar. Geirþrúður leitast eftir því að verk hennar séu rík í efnisgerð en á sama tíma létt og fínleg. Undanfarið hefur hún einbeitt sér að málverkinu. Hún hefur sýnt hér heima og erlendis.
GEE013

130.000 kr.

FREKARI UPPLÝSINGAR

Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um verk eða listamann vinsamlega sendu okkur fyrirspurn með hnappinum hér að neðan. 

Email*
Nafn*
Skilaboð*
Skrá á póstlista?

FLEIRI VERK

Geirþrúður Einarsdóttir

Eyja
Blönduð tækni á stirga
25,5
x 33 cm
130.000 kr.
GEE015

Geirþrúður Einarsdóttir

Eyja
Blönduð tækni á stirga
25,5
x 33 cm
130.000 kr.
GEE014

Geirþrúður Einarsdóttir

Brot
Bómull og hör
80
x 57.5 cm
250.000 kr.
GEE038

Geirþrúður Einarsdóttir

Himintær
Bómull og hör
50
x 40 cm
160.000 kr.
GEE039

Geirþrúður Einarsdóttir

Skjár / Screen
Blönduð tækni
50
x 37 cm
150.000 kr.
GEE007

Geirþrúður Einarsdóttir

Eyja
Blönduð tækni á stirga
30.4
x 30.5 cm
130.000 kr.
GEE028
Shopping Cart

Hafir þú spurningar um myndlistarráðgjöf, einstaka verk eða í leit af verki eftir ákveðinn listamann ekki hika við að senda okkur tölvupóst á netfangið listval@listval.is eða fylla út formið hér að neðan.

Nafn*
Netfang*
Skilaboð
Vantar þig hugmynd að nýjum verkum? Aðstoð við upphengi? Eða almenna ráðgjöf?

LISTVAL @ HARPA

LISTVAL @ GRANDI