Óskar Hallgrímsson útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2015 með B.A. gráðu í Grafískri hönnun og hefur einnig starfað sem ljósmyndari síðastliðin 17 ár, bæði á Íslandi og víða um heim. Ma Riika, sem er úkraínsk, útskrifaðist úr Odessa Grekov Art College af listmálaradeild árið 2014. Hún kláraði gráðu í listmeðferð frá PLINE miðstöðinni í sálfræði frá Kharkiv í Úkraínu. Hún hélt svo áfram í nám til myndlistardeild Kyiv Academy of Media Arts þar sem hún útskrifaðist árið 2018.