Sigurður Ámundason (f. 1986) útskrifaðist úr bakkalárnámi myndlistardeildar Listaháskóla Íslands árið 2012 og hefur síðan haldið fjölda einkasýningar, tekið þátt í samsýningum og flutt tugi gjörninga. Sigurður notast mest við teikningar en skapar einnig innsetningar, skúlptúra, vídeóverk, bókverk, ljósmyndir og leikverk.