Sigurrós G. Björnsdóttir (f. 1991) er íslenskur myndlistamaður sem býr og starfar í Antwerpen þar sem hún lauk MFA námi í myndlist frá Royal Academy of Fine Arts Antwerp árið 2021. Þar áður útskrifaðist hún með BA í vöruhönnun frá LHÍ árið 2017. Sigurrós vinnur í ýmsa miðla, en þó aðallega við gerð skúlptúra, lágmynda og teikninga þar sem hún leikur sér gjarnan á mörkunum milli tvívíddar og þrívíddar. Hún blandar eigin reynsluheimi, skáldskap og áhrifum frá umhverfi sínu við gerð verka sinna og miðlar með þeim ólíkum frásögnum. Sigurrós hefur tekið þátt í ýmsum sýningum bæði hér á landi og erlendis.
FREKARI UPPLÝSINGAR
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um verk eða listamann vinsamlega sendu okkur fyrirspurn með hnappinum hér að neðan.