Verkin eru handsaumuð teppi úr ull og akríl. Teppin tengjast öll saman sem ein sería til að skapa ímyndaðan heim sem endurspeglar daglegan raunveruleika listafólksins klæddan í hugljúfan búning nándar og samveru. Þegar allt kemur til alls þá eru það litlu hlutirnir sem skipta sköpum og þegar athygli heimsins er ekki lengur á því sem gerist í Úkraínu er nauðsynlegt að halda fast í grunninn og byrgja stoðirnar.