Einn og þrír ekki ÓE (b)
, 2022
ljósmynd á beygt plexígler
Í verkinu Einn og þrír ekki ÓE sýnir Þórdís þrjár útgáfur af sömu ljósmyndinni, mynd sem sýnir lítið brot af innpökkuðu verki eftir annan listamann. Titillinn vísar í upphafsstafi þess listamanns en einnig í þekkt verk í sögu konseptlistar. Með sínu verki varpar Þórdís fram vangaveltum um mörk og rými ljósmynda; hversu langt má seilast í að nota fundin sjónarhorn, og hvort hægt sé að gefa ljósmyndum efnislegt form þannig að þau öðlist þrívíða og skúlptúríska vídd.
Þrátt fyrir að Þórdís Jóhannesdóttir hafi lengi notað ljósmyndina sem sinn miðil telst hún seint til hefðbundinna ljósmyndara. Ljósmyndir eru grunnurinn sem hún svo brýtur upp á, teygir og togar bæði í yfirfærðri og bókstaflegri merkingu orðanna. Þórdís sækir myndefni sitt í hversdagsleikann; efnistökin eru form og litafletir sem hún fangar á ferðum sínum, ýmist í myndlist annarra, arkitektúr eða úti í náttúrunni. Myndirnar notar hún svo sem grunn til frekari útfærslu þrívíðra verka. Undirlag myndanna eru krossviður eða álplötur sem hafa verið brotnar þannig að þær myndi form sem kallast á við eða endurspegla efnistökin sem birtast í ljósmyndinni. Úr verða fletir sem taka á sig ljós og skugga sýningarrýmisins á mismunandi hátt; verk sem teygja sig útí rýmið og leika á mörkum þess tví- og þrívíða. Þórdís Jóhannesdóttir (f. 1979) nam myndlist við Listaháskóla Íslands; hún lauk B.A. námi árið 2007 og M.A.námi árið 2015. Þórdís hefur sýnt víða hérlendis, bæði sín verk og í samstarfi við Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur undir heitinu Hugsteypan. Af nýlegum sýningum mætti nefna Far í Hafnarborg og Afrit í Gerðarsafni, sem báðar voru hluti af Ljósmyndahátið Íslands 2020.
THJ012
75.000 kr.
FREKARI UPPLÝSINGAR
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um verk eða listamann vinsamlega sendu okkur fyrirspurn með hnappinum hér að neðan.