Michal Korchowiec (f. 1987) er pólskur listamaður sem vinnur ljósaskúlptúra úr sérvöldum antík lampaskermum frá árunum 1920-1980 sem hann hreinsar, skrúbbar og raðar saman í nýja heild. Upphaflega urðu skúlptúrarnir til við einmana iðju listamannsins í heimsfaraldrinum. Leikur með ljós, liti, birtu og form varð að viðleitni hans til að komast í gegnu einsemd og innilokun í gráum hversdagsleika einangrunar. Skúlptúrarnir lífguðu þannig upp á tilveruna, rétt eins og þeir lifna við í ljósaskiptunum þegar óvænt blæbrigði lita birtast og lýsa upp skammdegið.