Joe Keys
Joe Keys útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Hann er fæddur í Newcastle á Englandi og hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 2018.
Verk hans fjalla oft um teikningu, skúlptúr, ljóðlist og tengslin á milli þessara miðla. Teikningarnar kanna iðulega skúlptúrískt rými og skúlptúrarnir eru settir upp með næmi fyrir formi teikningar. Hann vinnur að mestu með fundna og afgangsefni og leggur áherslu á endurnýtingu og tilraunakennda nálgun.
Frá því hann flutti til Íslands hefur Joe þróað með sér mikinn áhuga á prentverkum, listamannabókum og sögu þeirra – bæði hérlendis og erlendis. Sá áhugi hefur leitt af sér fjölmörg sjálfstæð og samstarfsverkefni tengd sýningum og viðburðum, þar á meðal Stations of the Cross, ELSE, George and Tammy, Explanation Park og fleiri.
Joe hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og einkasýninga á Íslandi, í Bretlandi, Grikklandi og Finnlandi, svo fátt eitt sé nefnt.

Skráðu netfangið þitt hér og við sendum þér fleiri fáanleg verk.