Elli Egilsson Fox
ELLI EGILSSON (1981) er sjálfmenntaður myndlistarmaður fæddur og uppalinn í Reykjavík, en hefur starfað síðustu misseri í Los Angeles og Las Vegas, þar sem hann er búsettur.
Verk Ella eru unnin eftir ímynduðum myndformum íslenskrar náttúru, eins og hún formast í skapandi hugsun, engir sérstakir staðir hafðir í huga, pensillinn látinn ráða för og verkin máluð á draumkenndan hátt með heimagerðum olíulitum þar sem listamaðurinn notar sína eigin olíulitaformúlu.
Landslagsverkin einkennast af ofurnákvæmni í framsetningu áferðar og litameðferðar. Grafísk teikningin er gjarnan full af næmri tilfinningu fyrir hrjúfleika fjallsins, en sömuleiðis leikur hann sér að fínlegum línum þess þannig að úr verður samtvinnuð heildarmynd. Elli leitast við að sýna sterkbyggð form landslagsins, en úr þeim hefur hann þróað samfellda seríu málverka, sem byggir jafnt á stórbrotnu landslagi óbyggða Íslands sem og mýkt og mismunandi áferðum ósnortinnar náttúru.
“Verk mín eru einfaldlega minningar fyrir komandi kynslóðir, sýna landslagið eins og það verður til í hugarheimi mínum, raunverulegt en ímyndun í bland. Málarar fyrri tíma hafa skilið eftir sig stórbrotin listaverk sem lýsa því hvernig þeir sáu heiminn í kringum sig, veröld sem þá var. Mig langar að skilja eftir mig mína sýn, mitt sjónarhorn á náttúrunni og óbyggðum landsins, fyrir komandi kynslóðir að upplifa og njóta.”

Skráðu netfangið þitt hér og við sendum þér fleiri fáanleg verk.