7.11 –
28.11.2026
@ Listval

Erla Þórarinsdóttir

Endurómur

Í myndlist Erlu birtist leit að frummyndum og samhengi okkar í heiminum, hið sammennska. Erla hefur í gegnum árin þróað eigið myndmál sem einkennist af litum, táknum, hreyfingu og endurtekningu.

Á sýningunni í Listval eru sýndar teikningar sem enduróma ástand í samtímanum, hugtök og ímyndir í leit að virkni og vilja til að gera heilt. Í vinnuferlinu gefur Erla innsæinu svigrúm og leyfir hugmyndum að þróast á eigin forsendum. Þannig getur form stækkað eða tekið á sig nýja mynd í öðrum efniviði, líkt og sjá má í stálverkinu Saman. 

Í blýantsteikningunum er línan í forgrunni; einlínur eða lúpur sem tengjast í órjúfanlega heild. Leikur og leit, ritblý og strokur, einfalt og flókið. Sameiginlegt og prívat, möguleikar og ákall eftir nýrri framtíð, alheimssýn og ósk um póesíu.

Í járnteikningunum og stálverkinu Saman færist hin línulega teikning af pappírnum, verður þrívíð og tekur sér pláss í rýminu.

Málverkin bæta við litum og áferð og sýna aðra hlið á myndheimi Erlu, sem hefur í gegnum árin notað blaðsilfur í verkum sínum, efni sem bregst við umhverfi sínu og breytist með tímanum. Hvort sem er í teikningunum eða málverkunum þá er eins og hvert verk búi yfir sínum eigin ómi sem við skynjum fremur en heyrum. Saman mynda þau enduróm þar sem form og hugmyndir kallast á. 

Samhliða opnun sýningarinnar verður útgáfu ritsins Ómur / Resonans fagnað.

Ritið kemur út í tengslum við samnefnda sýningu Erlu sem haldin var í Listasafni Reykjanesbæjar sumarið 2026. Í því er fjallað um myndlist Erlu og feril hennar með ljósmyndum af verkum frá ýmsum tímabilum og textum eftir Jón Proppé, Helenu Solveigar Aðalsteinsbur og Þórunni Valdimarsdóttur. 

Verk á sýningu

Europe with Paris at its centre
Olía og blaðsilfur á striga
120
x 190 cm
1.800.000 kr.
ETH25
Gvass á platpeninga pappír
30
x 30 cm
230.000 kr.
ETH22
Í höfðinu
Gvass á platpeninga pappír
30
x 30 cm
ETH23
Ómur / Resonans
A4
4.500 kr.
ETH26
Osebergs skeppet, skali 1:20
Olía og blaðsilfur á striga
50
x 200 cm
1.200.000 kr.
ETH24
Ryðfrítt stál
160
x 150 cm
2.400.000 kr.
ETH20
Ritblý á karton
60
x 80 cm
490.000 kr.
ETH08
Ritblý á karton
60
x 80 cm
490.000 kr.
ETH09
Ritblý á karton
60
x 80 cm
490.000 kr.
ETH10
Ritblý á karton
60
x 80 cm
490.000 kr.
ETH11
Ritblý á karton
60
x 80 cm
490.000 kr.
ETH12
Ritblý á karton
60
x 80 cm
490.000 kr.
ETH13
Ritblý á karton
60
x 80 cm
490.000 kr.
ETH14
Ritblý á karton
60
x 80 cm
490.000 kr.
ETH15
Ritblý á karton
60
x 80 cm
490.000 kr.
ETH16
Ritblý á karton
60
x 80 cm
490.000 kr.
ETH17
Ritblý á karton
60
x 80 cm
490.000 kr.
ETH18
Ritblý á karton
60
x 80 cm
490.000 kr.
ETH19
Þjóðaröryggisráðstafanir
Járnteikning, smíðajárn
81
x 77.5 cm
640.000 kr.
ETH21

Erla Þórarinsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1955 og nam myndlist við Konstfack í Stokkhólmi og Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam. Hún hefur búið og starfað á Norðurlöndunum, í New York og Kína og sýnt verk sín bæði á Íslandi og erlendis. Verk hennar er að finna í safneignum helstu listasafna landsins, auk stofnana, fyrirtækja og einkaaðila hér á landi og erlendis. Erla hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar fyrir störf sín, meðal annars unnið samkeppni um listaverk fyrir Ráðhús Reykjavíkur og tvívegis hlotið styrk frá Pollock-Krasner Foundation í Bandaríkjunum.

Ljósmynd: Vigfús Birgisson
Shopping Cart