Á sýningunni Það sem undir býr fléttar Hólmfríður Sunna saman trúarlegu myndmáli og ferlum náttúrunnar. Hún sækir innblástur í tvíhyggju miðalda, þar sem hugmyndir um handanheim voru raunverulegur hluti af heimsmynd fólks. Undirheimurinn er hér ekki aðeins dulinn heimur undir hinum sýnilega, heldur moldin, leðjan og myrkrið sem lífið sprettur úr. Þar gerjast hlutir, rotna og umbreytast. Það sem virðist vera að leysast upp getur um leið orðið upphaf að nýjum vexti. Trúarleg tákn taka á sig tvíræðar merkingar þar sem þau mæta formum nàttúrunnar, sár Krists minna á kvenleg form og fræið verður tákn fyrir bæði endalok og upphaf. Hugmyndir um handanheiminn eru færðar niður í moldina, þar sem blómstrun og rotnun renna saman í eina hringrás
3.10 –
24.10.2026
@ Listval Gallery
Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttir
Það sem undir býr
Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttir (f. 1988) er myndlistarmaður búsettur í Reykjavík. Hún lauk BA-gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands árið 2015 og tveggja ára diplómanámi í málaralist við Myndlistarskóla Reykjavíkur vorið 2024. Í beinu framhaldi af náminu stundaði hún árs langt starfsnám í myndlist í Berlín. Síðan þá hefur hún haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hérlendis og erlendis.






























