Sýningin fæst við hina eilífu umbreytingu: óheft afl sem tjáir frá sjálfu sér það sem birtist og breytist án afláts, án þess að eiga sér afmarkað sjálf, heldur vera auðna — eða nokkurs konar vitund sem birtist í og í gegnum efni, til dæmis vatn. Í þessari sífelldu hreyfingu vaknar spurningin hvort umbreytingin sé í raun óstýrð eða hvort í henni búi innri stilling; ógreinanlegt lögmál sem heldur heildinni saman í spennu andstæðra póla, þar sem allt leitar jafnvægis, eins og sú leit sé hryggjasúla sköpunarinnar.
Handan orðsins auðna er auðnan enn. Hún er öræfi, von, gæfa og sársauki, frjósemi og eyðilegging. Náttúruguð sem gleypir, meltir og fæðir á ný. Ljósmyndirnar nema hið hljóða; það sem er, án þess að kalla á athygli. Í þeim opnast landslag, ofið úr fornu faðmlagi tilvistar, sem við erum órjúfanlegur hluti af.
Í kyrrð þess hverfur aðgreiningin milli þess sem horfir og þess sem horft er á inn í opið svið. Það sem virðist liggja utan okkar birtist ávallt í gegnum innra gangverk okkar. Í þeirri snertingu ber skynjunin með sér það sem innbundinn hugur getur hvorki numið til fulls né haldið — því allt er síkvikt.





















