Steingrímur Eyfjörð & Helgi Þórsson
Verk eftir Steingrím Eyfjörð (f. 1954) og Helga Þórsson (f. 1975) af sýningunni 'Valsað milli vídda' sem var sýnd í Gallerí Port árið 2020.
Steingrímur Eyfjörð er meðal hinna fremstu í þeirri kynslóð íslenskra listamanna sem fram kom á áttunda áratugi síðustu aldar. Í vinnu sinni nýtir hann sér fjölbreytta miðla, þar á meðal ljósmyndun, teiknimyndir, myndbönd, málun, skúlptúra, gjörningalist, skrif og innsetningar. Efnisvalið er álíka fjölbreytt; hann sækir innblástur í jafn ólíkar áttir og þjóðsögur, Íslendingasögur, tískutímarit, trúarbrögð, hjátrú, krítíska teoríu og margs konar annað efni úr samtímanum, í meðförum hans skarast þau á margræðum tengipunktum þannig að úr verða marglaga verk, á stundum rugla þau mann í ríminu en í þeim birtist ævinlega skýr og óvænt sýn á þau viðfangsefni sem unnið er með. Steingrímur var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2007.
Helgi Þórsson lauk BFA námi í myndlist frá Gerrit Rietfeld Akademíunni í Amsterdam 2002, nam Sónólógíu í Konunglegu Konservatoríunni í Haag og lauk 2004 MFA gráðu frá Sandberg stofnuninni í Amsterdam. Hann hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum viðsvegar um heim. Listasafn Reykjavíkur, Háskóli Íslands og bankar eiga verk eftir Helga sem og einkasafnarar. Helgi er einn stofnanda og meðlima listamannareknu list rýmanna Kunstschlager í Reykjavík og ABC Klubhuis í Andverpen. Helgi hefur hlotið verðlaun og styrki, meðal þeirra var tilnefning Gerrit Rietveld prize Winner 2002, AIAS samkeppnislaga sigurvegari í Seoul 2002 , Suð- ur-Kóreu. 2008 Children’s Choice Award Utrecht Art Museum, tilnefningu til KunstRAI verðlaunanna árið 2003 og úthlutun úr listasjóð Dungal 2004.

Enter your email address, and we will send you additional available works