Á sýningunni skoðar Helena samband sjálfsmyndar og væntinga samfélagsins. Verkin fanga augnablik þar sem líkami og sjálfsmynd reyna að fljóta, sveigjast og aðlagast. Hver stelling, hver spurning og hvert augnablik verður að tilraun til að falla inn í ákveðinn ramma. Sú viðleitni undirstrikar þá tilfinningu listamannsins að hún passi aldrei að fullu inn í þá ramma sem henni eru settir.
11.04 –
2.05.2026
@ Hornið
Helena Reynisdóttir
Ég finn ekki rammann
Works
Helena Reynis er myndlistarkona frá Reykjavík sem hefur síðastliðinn áratug búið og starfað í Stokkhólmi, Berlín og Reykjavík. Hún lauk diplómanámi í myndlist við Konstskolan Basis í Stokkhólmi og BA-gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands, þar sem hún stundaði einnig skiptinám við Humboldt-háskólann í Berlín. Hún er nú að ljúka MA-gráðu í kennslufræði myndlistarkennslu við HÍ
Verk Helenu spanna breitt svið, frá ofurraunsæi og abstrakt til kyrralífs og súrrealisma. Málverkið er hennar megin miðill, en hún vinnur einnig með aðra miðla. Í verkum sínum kannar hún tengsl sjálfsmyndar og kvenleika við samfélagsleg viðmið samtímans. Hún vinnur jafnframt með sjónrænar og hugmyndafræðilegar andstæður og skýrt sjónarhorn, þar sem hún færir hið raunverulega inn í óræðar myndir.



