Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir sýnir ný verk á sýningunni STEIN – SKRIFT í Norr11. Í verkunum veltir Áslaug fyrir sér myndmáli, lestri og skilningi, framsetningu tungumála og skilaboða. Áslaug vinnur með óhlutbundið myndmál og skoðar hvernig form verða að táknum sem verða svo partar af kerfum eins og myndletri, merkjakerfi eða stafrófi. Hún byggir upp myndflötinn með hinu táknræna kerfi og skapar jafnvægi milli myndmáls og efnis. Titill sýningarinnar Stein – skrift er óður til hýróglýfa og rúna sem forðum daga voru hoggin í stein.