Austan hafs, Vestan hafs
, 2022
Silkiþrykk á 300g bómullarpappír
29,5
x 114 cm
180.000 kr.
AME021
Málverk Árna Más (f. 1984) bera með sér óræða hreyfingu og einkennast af afmörkuðum litastrendingum sem blandast við samfléttaðar formgerðir, sem eiga tilurð sína í spunatengdum innsæisteikningum. Verk hans byggja oft á persónulegum reynsluheimi, og endurspegla hæglát augnablik í náttúru og þróun innri vegferðar. Uppruna verka hans má rekja til graff-menningar tíunda áratugarins og hip-hop tónlistar, þar sem hann færðist frá einum stað til annars og meitlaði tjáningu sína í borgarlandslagið. Ekki ósvipað hip-hop tónlistinni sem veitti honum innblástur, (sem blandaði saman eiginleikum blús, jazz og fönktónlistar), þá bar val hans á upprunamiðli merki hreyfanleika og aukinnar valdeflingar. Líkt og örvar teljast megintákn graffmenningar, oft í bland við texta, þá teljast stefnubendingar sem eitt af grunnhöfundareinkennum Árna Más allt frá byrjun og til dagsins í dag. Líkamleg framkvæmd verkanna er oftar en ekki bersýnileg, en hann er listamaður margra miðla. Þrátt fyrir að hafa lagt stund á ljósmyndanám, þá varð hann snemma innviklaður í prentmiðilinn (þar sem hann blandar oft mismunandi aðferðum saman), en frjálslynd aðferðafræðin hefur löngum orðið leiðarstef í gegnum feril hans og aðra miðla, svo sem málverk og skúlptúr. Árni Már er einn af stofnendum Gallery Ports á Laugavegi, sem hefur frá árinu 2016 fest sig í sessi innan íslenskrar listasenu með tilstilli framsækinna sýninga og var fyrir skemmstu kosið sem besta listamannarekna rými Reykjavíkur af tímaritinu Grapevine í þriðja sinn. Hann er þar að auki stofnandi listaframtaksins Festisvalls, sem hefur staðið fyrir ótalmörgum listviðburðum, prentstofum, tónleikum og listasýningum vítt og breitt um heiminn. 0

ADDITIONAL INFORMATION

If you would like more information about the artwork or the artist, please send us an inquiry using the button below. 

Email*
Name*
Message*
Newsletter

Framandi skrúfbolti
Print & editions
26
x 21 cm
35.000 kr.
AME007
Hin Hliðin
Print & editions
26
x 21 cm
35.000 kr.
AME010
Afbrigði 13
Olía á hörstriga
40
x 30 cm
150.000 kr.
AME020
Shopping Cart