Án titils/ Untitled
, 2021
Olía á hör
70
x 70 cm
680.000 kr.
HÁ020
Harpa Árnadóttir er kunn fyrir málverk sín, bæði verk sem hún kallar ,,sprunguverk” og önnur sem unnin eru með vatnslit á pappír og striga. Hvort tveggja felur í sér tilraunakennda rannsókn á yfirborði og gegnsæi. Málverk Hörpu eru gjarnan samsett úr lögum af vatnsleysanlegum lit og lími sem um síðir koma sprungur í og þannig myndast landslagskenndar formgerðir á striga. Þessar formgerðir minna á landslag, aragrúa litbrigða og samspils forma og skugga. Í vatnslitaverkum hennar mótar pappírinn sjálfur formgerðina ásamt lögum lita sem mynda þokukennda hulu yfir myndina. Grunnur margra verka hennar er sambandið milli málverks og bókmennta, eða nánar tiltekið sú hugmynd að líta megi á málverk sem sjónræna ljóðlist. Harpa er fædd 1965 á Bíldudal en ólst upp í Ólafsvík á Snæfellsnesi. Harpa sneri sér að myndlist eftir að hafa lokið BA gráðu í sögu og bókmenntum við Háskóla Íslands. Hún nam við Myndlista- og Handíðaskólann og lagði síðan stund á framhaldsnám við Konsthogskolan Valand í Gautaborg. Verk Hörpu hafa verið keypt og sýnd af söfnum víða í Evrópu og þau birtust á fyrsta tvíæringnum í Gautaborg, á Momentum, sjötta norræna tvíæringnum í samtímalist í Moss í Noregi. Sumarið 2011 gaf bókaútgáfan Crymogea út safn texta og vatnslitaverka eftir Hörpu undir heitinu Júní / June.

ADDITIONAL INFORMATION

If you would like more information about the artwork or the artist, please send us an inquiry using the button below. 

Email*
Name*
Message*
Newsletter

Öskufall
hafkalk og vatnslitir
90
x 90 cm
790.000 kr.
HÁ154
Skuggafall
olía á hör
120
x 180 cm
1.400.000 kr.
HÁ141
Vatnslitur, pappír, blýantur, olía á bómullarstriga
70
x 70 cm
690.000 kr.
HÁ159
Lífsins tré vex í undirdjúpunum
olía á hör
100
x 150 cm
1.100.000 kr.
HÁ140
Öskufall
olía á hör
70
x 70 cm
690.000 kr.
HÁ142
Sól eftir sól hrynja í dropatali
Lím og kalkþörungaduft á striga
120
x 120 cm
890.000 kr.
HÁ051
Shopping Cart