Árni Már Þ. Viðarsson

Árni Már Þ. Viðarsson (f. 1984) býr og starfar í Reykjavík. Hann hefur haldið nokkrar einkasýningar hér á Íslandi og tekið þátt í all mörgum samsýningum bæði hér heima og erlendis. Málverk Árna Más bera með sér óræða hreyfingu og einkennast af afmörkuðum litastrendingum sem blandast við samfléttaðar formgerðir, sem eiga tilurð sína í spunatengdum innsæisteikningum. Uppruna verka hans má rekja til graff-menningar tíunda áratugarins og hip-hop tónlistar, þar sem hann færðist frá einum stað til annars og meitlaði tjáningu sína í borgarlandslagið. Ekki ósvipað hip-hop tónlistinni sem veitti honum innblástur, (sem blandaði saman eiginleikum blús, jazz og fönktónlistar), þá bar val hans á upprunamiðli merki hreyfanleika og aukinnar valdeflingar. Þrátt fyrir að hafa lagt stund á ljósmyndanám, þá varð hann snemma innviklaður í prentmiðilinn (þar sem hann blandar oft mismunandi aðferðum saman), en frjálslynd aðferðafræðin hefur löngum orðið leiðarstef í gegnum feril hans og aðra miðla, svo sem málverk og skúlptúr. Árni Már er einn af stofnendum Gallerí Ports á Laugavegi, sem hefur frá árinu 2016 fest sig í sessi innan íslenskrar listasenu með tilstilli framsækinna sýninga og var fyrir skemmstu kosið sem besta listamannarekna rými Reykjavíkur af tímaritinu Grapevine. Hann er þar að auki stofnandi listaframtaksins Festisvalls, sem hefur staðið fyrir ótalmörgum listviðburðum, prentstofum, tónleikum og listasýningum vítt og breitt um heiminn. – Kristína Aðalsteinsdóttir
Árni Már Erlingsson Gallerí Port

Enter your email address, and we will send you additional available works 

Email*
Name*
Message*
Newsletter

Download CV

+ Visit website

Works

Arni-Mar-Erlingsson-Austan-hafs-Vestan-hafs-3adba442
Austan hafs, Vestan hafs
Silkiþrykk á 300g bómullarpappír
114
x 29,5 cm
180.000 kr.
AME021
Olía á hörstriga
50
x 60 cm
AME21
Olía á hörstriga
40
x 50 cm
AME22
Olía á hörstriga
40
x 50 cm
AME23
Olía á hörstriga
40
x 40 cm
210.000 kr.
AME24
Olía á hörstriga
30
x 40 cm
AME25
Shopping Cart