3.10 –
24.10.2026
@ Listval Gallery

Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttir

Það sem undir býr

The exhibition Það sem undir býr fléttar Hólmfríður Sunna saman trúarlegu myndmáli og ferlum náttúrunnar. Hún sækir innblástur í tvíhyggju miðalda, þar sem hugmyndir um handanheim voru raunverulegur hluti af heimsmynd fólks. Undirheimurinn er hér ekki aðeins dulinn heimur undir hinum sýnilega, heldur moldin, leðjan og myrkrið sem lífið sprettur úr. Þar gerjast hlutir, rotna og umbreytast. Það sem virðist vera að leysast upp getur um leið orðið upphaf að nýjum vexti. Trúarleg tákn taka á sig tvíræðar merkingar þar sem þau mæta formum nàttúrunnar, sár Krists minna á kvenleg form og fræið verður tákn fyrir bæði endalok og upphaf. Hugmyndir um handanheiminn eru færðar niður í moldina, þar sem blómstrun og rotnun renna saman í eina hringrás

370.000 kr.
HSG26
Pappír og blek
19
x 29 cm
130.000 kr.
HSG21
Olía á mdf
24
x 41 cm
170.000 kr.
HSG13
oil on canvas
70
x 70 cm
360.000 kr.
HSG18
Pappír og blek
19
x 29 cm
130.000 kr.
HSG20
Olía á mdf
72
x 104 cm
450.000 kr.
HSG14
Blönduð tækni á mdf
39
x 40 cm
165.000 kr.
HSG19
oil on canvas
80
x 100 cm
HSG11
Tveir englar bíta á agnið
oil on canvas
30
x 30 cm
160.000 kr.
HSG15
Blönduð tækni á mdf
42
x 63 cm
270.000 kr.
HSG16
Olía á pappír
42
x 59 cm
230.000 kr.
HSG17
oil on canvas
80
x 100 cm
420.000 kr.
HSG12

Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttir (f. 1988) er myndlistarmaður búsettur í Reykjavík. Hún lauk BA-gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands árið 2015 og tveggja ára diplómanámi í málaralist við Myndlistarskóla Reykjavíkur vorið 2024. Í beinu framhaldi af náminu stundaði hún árs langt starfsnám í myndlist í Berlín. Síðan þá hefur hún haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hérlendis og erlendis.

Shopping Cart