31.01 –
21.02.2026
@ Listval

Korkimon

Prótótýpur 01

Líkaminn er miðlægur í verkum Korkimon á sýningunni Prótótýpur 01. Blýanturinn og flæði sköpunarferlisins ræður för og form líkamans er afmáð. Á pappírnum virðast fígúrurnar vera á hreyfingu þar sem óreglulegar línur og röskuð hlutföll leysast upp. Teikningarnar eru gróteskar en í senn aðlaðandi. Fígúrurnar fást við erfiðar tilfinningar eins og einmanaleika og hugarstríðið sem í því felst að hafa óraunhæfar væntingar til sjálfs sín. Verkin fjalla ekki síður um léttinn sem felst í því að sleppa af sér beislinu og vera maður sjálfur, oft í einrúmi.

       Verkin eru persónuleg rannsókn á sjálfsmynd, hlutverkum og umbreytingu. Þessi nálgun endurspeglar reynslu af því að flytja á milli landa þegar hún var yngri og þurfa að staðsetja sig á ný. Vera stöðugt á hreyfingu, líkamlega og tilfinningalega. Hin óræðu form og framsetning líkamans eru því tákn um upplausn og togstreitu listamannsins á því að finna sinn stað.

       Verkin á sýningunni eru verk sem eiga sér langan aðdraganda, skissur, frumgerðir og hráar útfærslur frá ferli Korkimon. Í mörgum þeirra má sjá leiðréttingar og strokanir sem eru tákn um umbreytingu og þroskaferli undanfarinna ára. Má leiða líkum að því að verkin hafi staðið sem opnar yfirlýsingar og opin augnablik í leit af einhverju – en standi nú í stað sem persónuleg saga um tilvist og sköpunarferli – og tímabil í lífi listamannsins.

Works

Inefficient and Unreliable
Blýantur og málningarteip á pappír
72
x 39 cm
240.000 kr.
KM12
Nightbitch Prótótýpa
blýantur, olía og málningarteip á pappír, hnotubæsaður eikarrammi með spegilfríu gleri
61
x 38 cm
220.000 kr.
KM22
Óábyrgar í karlamálum I
103
x 134 cm
520.000 kr.
KM17
Óábyrgar í karlamálum II
103
x 134 cm
520.000 kr.
KM16
Óábyrgar í karlamálum III
103
x 103 cm
380.000 kr.
KM15
Óábyrgar í karlamálum IV
103
x 103 cm
380.000 kr.
KM14
Óáhugaverð, ófélagslynd og óframfærin
Grafít, blýantur, kol og teip á kraftpappír
122
x 162 cm
750.000 kr.
KM18
Passionate, Opinionated, with a Bad Temper Prótótýpur
blýantur og málningarteip á pappír
52
x 39 cm
190.000 kr.
KM19
Self-Loathing and Productive
70
x 51 cm
290.000 kr.
KM13
Social Dropout Prótótýpa
blýantur, olía og málningarteip á pappír, hnotubæsaður eikarrammi með spegilfríu gleri
43.5
x 38 cm
180.000 kr.
KM20
Suburban Monster Prótótýpa
blýantur og málningarteip á pappír, hnotubæsaður eikarrammi með spegilfríu gleri
44
x 46 cm
KM21

Korkimon (Melkorka Katrín, f. 1995) er íslenskur listamaður búsett í New York. Korkimon vinnur þvert á form og miðla, og á meðal hennar verka eru teikningar, collage, skúlptúrar og ljósmyndir. Korkimon hefur haldið bæði einka- og samsýningar hérlendis og erlendis. Verk hennar hafa meðal annars verið sýnd í Ásmundarsal, Fyrirbæri, Listval, Herma, Gallery Port og 1300° Gallery í Reykjavík, Morgan Lehman Gallery, Satellite og O’Flaherty’s í New York, The Goss-Michael Foundation í Texas, og víðar. Um þessar mundir leggur hún stund á mastersnám í myndlist við School of Visual Arts.

Shopping Cart