Flökkusinfónía, samstarfsverkefni Gjörningaklúbbsins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands, verður frumflutt á Myrkum músíkdögum.

Mynd: Saga SIg

Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Myrkum músíkdögum 2024 fá tónleikagestir að upplifa nýstárlegt verk Gjörningaklúbbsins, Flökkusinfónu, þar sem tónlist, myndlist og kvikmyndalist renna saman í eitt. „Verkið býður upp á abstrakt ferðalag þvert á tungumál þar sem flökkutaugin, samkenndartaug líkamans er virkjuð,“ segja listamennirnir um verkið, en sinfónían byggir á upplifun miðils á forsögu elstu hljóðfæra Sinfóníuhljómsveitar Íslands. „Í verkinu er allt skynróf líkamans virkjað á flakki um óræða heima á mörkum draums og veruleika.“

Shopping Cart