Eva Ísleifs, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir & Rakel McMahon
Dialectic Bubble
23.06.–03.07.2022
Um sýningu
Okkur er ánægja að kynna verkið Dialectic Bubble, sem var unnið af samstarfsteyminu “It´s the media not you!”, Evu Ísleifs, Katrínu Ingu Jónsdóttur Hjördísardóttur og Rakel McMahon.
Verkið, sem er frá árinu 2019 og var upphaflega gjörningur á húsþaki í Aþenu, fól í sér þriggja sólarhringa samtal á milli listamannanna sem eingöngu átti sér stað í rituðu máli.
Með verkinu vildu listamennirnir skoða samtímis ýmsa óvissu og áhrifaþætti samtalsformsins og gjörningarlistformsins. Bæði eru þau hverful, bundin tíma og stað þar sem (framhalds) líf þeirra er alfarið háð skrásetningu í gegnum aðra listmiðla.
Í Listval, Hörpu, býðst áhorfandanum að upplifa verkið í gegnum sýndarveruleika. Gestir fá því tækifæri til þess að upplifa gjörninginn sem fram fór á húsþakinu í Aþenu líkt og þau væru raunverulega stödd á staðnum. Þá verða einnig til sýnis myndræn framsetning á samtölum listamannanna eða hinu Dialectic Bubbles (hugsunarblöðrur), sem telja á sjötta hundrað.
Dialectic Bubble hefur áður verið sýnt í Ltd Ink Corporation, Edinborg árið 2019.