Mynd af ketti
, 2022
Papier-Maché
12
x 12 cm
Verkið Mynd af ketti er skúlptúr úr pappamassa sem byggir á ljósmynd í ramma sem fundin var á nytjamarkaði. Verkið var sýnt á sýningunni Forvera í Listasafninu á Akureyri sumarið 2022.
Auður Lóa Guðnadóttir er myndlistarmaður, sem leikur sér á landamærum hins hlutlæga og huglæga, skúlptúrs og teikningar, listar og veruleika. Hún vinnur markvisst með hversdagsfyrirbæri, fígúratíft, og myndmál sem hún sækir í forna jafnt og nýliðna sögu.
Auður Lóa útskrifaðist af myndlistasviði Listaháskóla Íslands 2015. Síðan þá hefur hún starfað sjálfstætt og í samstarfi við aðra listamenn, og tekið þátt í sýningum eins og Forvera í Listasafninu á Akureyri, Brúnn Bleikur Banani í Gallery Port og Leikfimi í Safnasafninu. Hún hlaut hvatningarverðlaun myndlistarráðs 2018 fyrir sýninguna Díana, að eilífu. Vorið 2021 opnaði hún sína fyrstu stóru einkasýningu í D-sal Listasafns Reykjavíkur en hún bar titilinn Já / Nei og samanstóð af yfir 100 skúlptúrum úr pappamassa.
139
120.000 kr.
FREKARI UPPLÝSINGAR
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um verk eða listamann vinsamlega sendu okkur fyrirspurn með hnappinum hér að neðan.