Í einskismannslandi
, 2022
Olía à striga
50
x 80 cm
Í landi Þórsmerkur stendur myndarlegur klettur. Þar gnæfir hann yfir Krossáraurum eins og kóngur í ríki sínu. Málverkið var hluti af sýningunni Abstrakið í grjótinu sem stóð yfir í Mjólkurbúðinni á Akureyri vorið 2022. Þar voru til sýnis málverk af huldum gersemum hálendisins sem fönguðu auga listamannsins í gönguferðum hans um landið.
Halldór Kristjánsson (f. 1992) er listmálari starfandi í Reykjavík. Eftir nám í akademískri málun í Florence Academy of Art í Gautaborg, Svíþjóð, hefur hann iðkað list sína í bland við kennslu í olíumálum í myndlistarskóla Kópavogs og Reykjavíkur. Undir áhrifum málara 19. aldarinnar er teikning og blanda ljóss og skugga í fyrirrúmi í verkum Halldórs. Með þeim aðferðum sækist hann eftir því að fanga draumkenndar svipmyndir sem liggja handan þess sjáanlega. Verk Halldórs eru fígúratív og spanna vítt viðfangsefni, frá draumkenndum myndum af fólki að landslagi. Náttúran stendur honum nærri og er endalaus brunnur hughrifa og griðastaður.
HK001
340.000 kr.
FREKARI UPPLÝSINGAR
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um verk eða listamann vinsamlega sendu okkur fyrirspurn með hnappinum hér að neðan.