Loading...

Hildur Bjarnadóttir: Color of Belonging

Bók þessi er gefin út í tengslum við opnun sýningarinnar Vistkerfi lita í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum. Sýningin er unnin í framhaldi af listrannsóknarverkefni Hildar Bjarnadóttur við Miðstöð listrannsókna í Noregi og Listakademíuna í Björgvin þar sem Hildur gegndi rannsóknarstöðu frá árinu 2012 til 2015. Sýningin var einnig sett upp í sýningarsal Bergen Kjøtt í Noregi árið 2015. Bókin og sýningin Vistkerfi lita byggjast á vinnu listakonunnar síðustu þrjú ár en þar eru í raun dregnar saman hugmyndir sem Hildur hefur fengist við allt frá því hún hófferil sinn á níunda áratug aldarinnar sem leið. Verkin endurspegla hugleiðingar hennar um eðli málverksins í gegnum efnivið þess, vinnuaðferðir og uppruna lita. Hildur byggir upp flöt málverkanna frá grunni með þráðum sem hún litar áður en verkin eru ofin. Vinnuaðferðir hennar tengja verkin við reynsluheim kvenna og handverkskunnáttu sem eitt sinn var almenn en er nú orðin fágæt. Samband listakonunnar við umhverfi sitt og uppruna endurspeglar sterk tengsl á milli manns og náttúru, efnis og uppruna, sögu og samtíma. Í verkum hennar mætast menning og hversdagslíf, og með djúpri hugsun, túlkun og úrvinnslu eru færð rök fyrir mikilvægum hugmyndum um virðingu fyrir landinu, sögunni og þeim verðmætum sem fortíðín hefur fært okkur og við berum ábyrð á til framtíðar.
Mjúkspjalda

111 blaðsíður

Myndskreytt

Tungumál: enska og íslenska

Útgáfurár: 2016

Útgefendur: Norska lista- og félagsmálaáætlunin/Lista- og hönnunarakademían í Bergen/Listasafn Reykjavíkur

Stærð: 20 cm x 26 cm

Þyngd: 475 g

FREKARI UPPLÝSINGAR

Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um verk eða listamann vinsamlega sendu okkur fyrirspurn með hnappinum hér að neðan. 

Fáðu send skilaboð þegar ný verk eftir viðkomandi listamann koma á skrá. 

Án titils
Akríl á striga
20
x 20 cm
70.000 kr.
ÞJ026
Sígarettustubbur
Akríl á striga
20
x 20 cm
70.000 kr.
ÞJ025
Árabátur
Akríl á striga
30
x 30 cm
120.000 kr.
ÞJ024
Látlaus hafátt með umhleypingum og regni
Textaverk
62
x 52 cm
260.000 kr.
JHL007
Laufblöð meitluð í stein
Textaverk
62
x 52 cm
260.000 kr.
JHL008
Þessar jökulrákir surfu sandkorn
Textaverk
62
x 52 cm
260.000 kr.
JHL009
Fyrstu sólardagar eftir flóðið
Textaverk
62
x 52 cm
260.000 kr.
JHL010
Material landscape / Efnislandslag
Olía á striga
70
x 70 cm
780.000 kr.
GE031
Shopping Cart