Fíber, akrílgler, stál, lím / Fiber, acrylic glass, steel, glue
Upplag: 6
Verkið er nýjasta verkið í flokknum Afstæði, sem Rúrí hefur unnið með um árabil, þar sem hún skoðar afstæði mæliniðurstaða. Ef mælitæki sem notað er til að mæla niðurstöður kannana eða tilrauna getur haft mismunandi birtingarmyndir, skyldi maður ætla að niðurstöður slíkra athugana geti á sama hátt haft mismunandi birtingarmyndir. Þannig mætti ætla að ýmis siðferðileg gildi geti “átt sér stað”, þó að erfitt geti reynst að setja upp hefðbundnar vísindatilraunir til að sanna eða afsanna tilvist þeirra.
Sé tekið mið af niðurstöðum rannsókna minna á Afstæði mælieininga virðist ekkert því til fyrirstöðu að hægt sé að fullyrða að huglæg gildi eins og til dæmis væntumþykja, foreldraást, réttlæti og fegurð séu raunveruleg gildi.
670.000 kr.
1 in stock
1 in stock