Auður Lóa
Auður Lóa Guðnadóttir er myndlistarmaður, sem leikur sér á landamærum hins hlutlæga og huglæga, skúlptúrs og teikningar, listar og veruleika. Hún vinnur markvisst með hversdagsfyrirbæri, fígúratíft, og myndmál sem hún sækir í forna jafnt og nýliðna sögu.
Auður Lóa útskrifaðist af myndlistasviði Listaháskóla Íslands 2015. Síðan þá hefur hún starfað sjálfstætt og í samstarfi við aðra listamenn, og tekið þátt í sýningum eins og Forvera í Listasafninu á Akureyri, Brúnn Bleikur Banani í Gallery Port og Leikfimi í Safnasafninu. Hún hlaut hvatningarverðlaun myndlistarráðs 2018 fyrir sýninguna Díana, að eilífu. Vorið 2021 opnaði hún sína fyrstu stóru einkasýningu í D-sal Listasafns Reykjavíkur en hún bar titilinn Já / Nei og samanstóð af yfir 100 skúlptúrum úr pappamassa.
